
UM VERKEFNIÐ
Lesum- Lítið verkefni með stóran boðskap
Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir er stofnandi Lesum. Henni hefur alltaf verið hugleikið að vinna að velferð og jöfnuði meðal barna.
Heiðrún sótti um styrk í Þróunarsjóð námsgagna árið 2020, markmiðið var að vinna námsgögn fyrir leikskóla sem um leið yrði fræðsla til foreldra um mikilvægi þess að efla orðaforða og hugtakaskilning barna. Sjóðurinn veitti styrk til verkefnisins.

