Opnar og lokaðar spurningar

Opnar spurningar

Mikilvægt er að nota opnar spurningar þegar talað er við barnið. Það gefur tækifæri til að auka við orðaforða barnsins.

Hvað varstu að gera í leikskólanum?
Ég fór í göngutúr og við sáum kisu og hún elti okkur alla leið út á róló

Hvernig leit kisa út?
Hún var grá á litinn með græn augu

Hvers vegna heldur þú að kisa hafi elt ykkur út á róló? Hmmm?
Kannski finnst henni við bara vera skemmtilegir krakkar 🙂

Lokaðar spurningar

Spurningar sem hægt er að svara með já eða nei gera ekki mikið til að efla orðaforða barnsins.

Var gaman í leikskólanum? Já
Fórstu ekki út? Jú
Varstu að leika við krakkana? Já